Tobba Thunder
leitarvélar
15.05.2006 16:26:11 / Tobba Thunder

Svíþjóð bíður

Já góðan daginn!!!

ég átti víst blogg síðu hérna...

ýmislegt að ské þessa dagana, er hætt á leikskólanum (loksins), byrjuð í fínni vinnu hjá vodafone, fékk frábærar einkunnir í skólanum og titla hér með sjálfa mig sem Tobbu Nörd:haha:  annars er það bara frábært sumar í vændum er alveg viss um að það verði svakalegt veður!! svo er það auðvitað sverige á næsta leiti eða eftir aðeins 3 daga!!! Viss um að svíar séu að pissa niðrúr úr spenningi yfir að fá okkur lisebergs og bernespizzu óða fólk í heimsókn!!! kannski spurning um að fara að finna flugmiðann, en ég held ég hafi ekki séð hann síðan ég pantaði ferðina í febrúar;)  læt þetta duga, ætla fara að gera eitthvað af viti, hugsanlega skella í eina vél eða svo og byrja að huga að ferðatöskumálum?!?!

later....


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 21:01:35 / Tobba Thunder

kannski pínu þá...

jæja þá... einhver smá færsla endrum og eins kannski, sjáum svo hvað setur.

Lífið snýst um vinnu, skóla og lærdóm þessa dagana. Annars er Þoka litla alveg fárveik, búin að vera uppá dýraspítala í allan dag með vökva í æð og einhverjum rannsóknum, kastar bara upp útí eitt og alveg hræðilega veikluleg að sjá litla greyið.

Jújú smá skemmtun framundan líka, reyndar ekki fyrr en í maí en ég, Halldór og Anna Soffía ætlum að skella okkur til sverige!!

Svo jónsi minn hér með veistu það;) við mætum 18. maí og þið losnið ekki við okkur fyrren þann 25.

svo ég segi bara watch out sweden, here we come!!!!!!

later....


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 20:40:52 / Tobba Thunder

Loka færslan

Same shit, different day...

allt malt úr mér, veit bara ekki hvað ég ætti að vera að skrifa um, og þar sem enginn nennir að commenta heldur hef ég ákveðið að láta gott heita með blogg í bili.

svo hér með er ég hætt að blogga...

later everyone..


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 11:56:35 / Tobba Thunder

Rútína

sæl og margblessuð..

veit ekki hvað er í gangi með þetta blog, hvort maður eigi að vera að halda áfram  að rembast við að reyna að blogga, þar sem maður er nú ekki í útlandinu any more!?!?!

hvað um það! hér kemur smá pistill.

Skólinn er byrjaður og kominn á skrið, gengur alveg þokkalega og þetta er bara þrælgaman. það líka alveg ágætt bara á leikskólanum, krakkarnir eru þvílíkar snúllur. það er sem sagt að myndast alveg ágætis rútina sem mig líkar nokkuð vel, eina kannski að ég ætti að koma mér fyrr í háttinn á kvöldin en það kemur kannski seinna meir. svo er ég búin að vera dugleg að skella mér í sund, var að stinga uppá því við jójó að þetta yrði eitthvað sem við gerum 3-4 sinnum í viku, undirtektirnar voru kannski ekkert til að húrra yfir. þá er kannski málið að plata hana einhverja daga og bögga svo bertu eða gg líka, þá verður þetta nú ekki nema 1,33 skipti á mann!

Við GG skelltum okkur í afmæli til Hrefnuí gærkvöldi, þar var voða fjör, ekkert smá gaman að hitta víðines liðið aftur, þar var tvær tegundir af bollu og skota bakki svo það var endalaust mikið af áfengi í boði afmælisbarnsins, og hljómsveit að spila, þetta var alveg svaka stuð.

en jæja that´s all folks.... seinna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 12:33:59 / Tobba Thunder

nýtt ár og margt að baki...

jæja þá er maður kominn heim á klakann, jólinn og áramótin búin og skólinn að byrja. er komin með vinnu, á leikskóla í árbænum fyrir hádegi sem ef fínt svona til að byrja með. var að koma úr viðtali hjá mannafli þar sem ég er komin á skrá og er að bíða og vonast eftir skrifstofu jobbi. hugsa að það sé skemmtilegra með náminu og gott að fá reynsluna líka. en svona til þess að vera eins og allir hinir þá eru hérna nokkir puntar yfir hluti sem ég hef gert eða afrekað á árinu 2005.

  • varð hund gömul, eða 22 ára
  • hætti á víðinesi eftir 4 og 1/2 ár
  • fór í helgarferðir til london, braintee og gautaborgar
  • flutti til englands
  • eignaðist nýjan bíl 2 á sama árinu (sama bílinn)
  • fór á þjóðhátíð
  • flutti aftur heim á klakann
  • komst inn í mk á skrifstofubraut

svo má auðvitað taka fram að fjarbúðin við indverjan gékk ljómandi á árinu sem leið.:haha:

en jæja gott í bili.... thunder out


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 17:08:50 / Tobba Thunder

eins og Sardína í dós í háloftunum

Í þessum töluðu orðum situr mútta mín eins og sardína í dós í háloftunum einhverstaðar yfir skotlandi myndi ég gíska á, til þess eins að koma og vera hjá mér í nokkra daga (og versla). 

Í gærdag var síðasti dagurinn minn að vinna, og svo fórum við Liz á djammið í gærkvöldi og héldum rækilega uppá það og síðustu helgina mína í Braintree. það var ekkert smá stuð var eiginlega bara svona girls night, hittum fullt af öðrum stelpum sem liz þekkir eitthvað og ég farin að kannast við, það var sungið og dansað og drukkið alveg útí eitt og bara eitt af skemmtilegri kvöldum mínum í braintree verð eg að segja, go figures, þar sem ég er auðvitað að fara skömmu síðar. það var tekið alveg böns af myndum sem verður skemmtilegt að sýna þegar ég kem heim.  en jæja það er bara rétt rúmur klukkari þangað til kellan lendir svo það fer að styttast í að ég þurfi að fara að koma mér af stað eða allavega fara að fikra mig í átt að stansted. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 18:35:47 / Tobba Thunder

Gleðifréttir

Sko stelpuna!! þetta getur hún!

eins og flestir vita þá ætla ég að setjast aftur á skólabekk eftir áramót. sótti um í flensborg, ´borgarholtsskóla og MK. var búin að fá jákvæð svör frá bæði borgó og flensborg en langar mest í mk svo ég er bara búin að vera að bíða og vona eftir inngöngu þar. og viti menn Guðni og mútta hringdu í dag og sögðu mér að ég fékk inn!!!! og ég er ekkert smá happy með það.  þannig að núna vanntar mig bara vinnu, frá 8 til 12 fyrir hádegi. er einhver sem veit um vinnu fyrir mig??


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 14:58:34 / Tobba Thunder

mútta að koma til mín

hæhæ og hóhó, styttist óðum ekki nema 12 dagar til jóla. hvað skyldi jóli hafa gefið landanum í skóinn í nótt? minn var allavega tómur, fór ekki einu sinni uppí glugga. en þá eru það aðal fréttirnar, þó svo að flestir hafi nú verið búnir að heyra þær, en mútta er að koma hingað út til mín:) kemur á sunnudaginn, 18 des. og man ó man mig hlakkar til að fá hana. er svo miklu meiri mömmu stelpa heldur en ég gerði mér nokkurn tímann grein fyrir þegar ég var heima á íslandi. þannig að síðasti dagurinn minn að líta eftir krökkum verður á laugardaginn. svo ég verð í fríi meðan mamma er hér, ætla að fara með hana í lake side og jafnvel inní london að sýna henni jólaljósin. fæ að hafa bílinn "minn" alveg þangað til ég fer heim þó svo ég verð ekki að vinna. sem er voða nice.

Annað í fréttum er að ég fór til st albans á laugardag og heimsótti Atla. vinur hans Kobbi og kærsta Birgitta voru einmitt í heimsókn þessa helgi, svo það var notað tækifærið og spilað kana. mér til mikillar gleði, hef ekki spilað í 4 mánuði eða svo!!!  Um 6 leitið á sunnudagsmorguninn hrekk ég upp, við þennan svakalega hávaða og allt húsið hristist, ó my god hvað ég var hrædd, var hálf sofandi líka og hélt hreinlega að heimsendir væri bara skollinn á, en nei var nú ekki svo slæmt, heldur var það sprengingin af oliustöðinni sem ég vaknaði við. þarf svo sem ekki að segja frá því, allir búin að sjá og heyra um hana í fréttunum, en þegar við fórum í bæinn svona um 11 leytið, var ekkert smá drungalegt yfir öllu, var svona eins og war of the worlds væri að bresta á en svo sáum við hvað þetta var, eitur gufurnar og reykurinn af sprenginunni var bara eins og svört ský yfir allri borginni, frekar spúký. og vond mengunnar lykt í loftinu. en við eyddum deginum að rölta í búðir og svo skutlaði ég vininum og kærustu á flugvöllinn á leiðinni heim. þetta ferðalag tekur nú ekki nema 55 mín, mun styttra og auðveldara en ég bjóst við, og auðvitað ekki fyrren núna að maður lét verða af því að skella sér í heimsókn, svona rétt fyrir heimförina. en jæja that´s all folks for now...

p.s. var ég búin að segja ykkur að mamma er að koma:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 09:01:59 / Tobba Thunder

Upplifun vægast sagt!

Geðbilaðir tónleikar!!!!

það er bara ekki hægt að segja annað, va hvað þetta var gaman! við vorum komnar á svæðið 5 mín yfir sjö og leyst sko ekkert á það sem við sáum, það var svo mikið af fólki, ég hef aldrei á æfi minni séð svona svaðalega langa röð, hún var endalaus, en gékk furðu fljótt fyrir sig, ótrúlegt en satt. þegar við komum inn fórum við fremst og biðum. fyrst komu 2 dj:ar sem voru alveg geggjað góðir, vildi gjarnan fá að vita hvað þeir heita. þeir mixuðu meðal annars prodigy og rage against the mashine og það var ekkert smá töff. þeir spiluðu í i einhvern klukkutíma eða svo, svo kom hljómsveikt á sviðið sem enginn vissi hver var, það var geðveikt fyndið, crowdið byrjaði að öskra "who are you! who are you! who are you!" þeir voru nú ekki neitt sérstaklega kátir með það og öskruðu á móti who the fuck are u!!!! en þessi hljómsveit var alveg ágæt, svona einhverskonar blanda af green day, the killers og franz ferdinand! söngvarinn var samt einhvern veginn að reyna einum of mikið, og það var auðvitað enginn kominn þangað til að horfa á þá og þeir voru alveg endalaust lengi þarna á sviðnu! en loksins þegar þeir voru búnir komu dj:arnir aftur og spiluði í svona hálftíma, átti greinilega að gera mannskaðinn alveg crazy á að bíða eftir aðal mönnunum! en svo loks klukkan hálf 10. komu þei á svið og shit og vá vá vá vá vá!!! veit ekki hvað ég á að segja, þeir voru svo flottir, maxim var baaaara cool, svipurinn á honum sko!!! svo var keith baaaaara töffari, þeir voru allir alveg ótrúlega góðir! og greinilegt að það farf að koma sér í karakter fyrir tónleika, allavega maxim, úfff, en við vorum sem sagt fremst eða í röð númer 3 fyrir miðju og þegar þeir komu á svið, þá byrjaði geðveikin! beltið mitt slitnaði í brjálæðinu og ég var skíthrædd um að missa niðrum mig brækurnar, og gauranir svo svo geðveikir hoppansi um eins og ég veit ekki hvað, svo ég hugsaði bara, cant beat them then join them!!! og hoppaði bara með en eftir smá stund ákvað ég að færa mig pínu til hliðar og var þá beint fyrir framan hátalarana!!! og það er sko ennþá svona buzz i eyrunum á mér!!! þar varð allt viltlaust þegar þeir tóku smack my bitch up, no good start the dance, diesel power og poison! hefði bara viljað sjá þá taka breathe líka, eina lagið sem ég svona man sérstaklega eftir að þeir tóku ekki! en þeir spiluðu í einn og hálfan tíma og án gríns þá var farið að rigna inní höllinni seinni hlutann þarf sem svitinn var farinn mynda dropa í loftinu og það var ekki þurr blettur á nokkrum manni eftir þessa upplifun! svo þetta var alveg yndisleg upplifun sem ég hefði sko ekki viljað missa af!!!

vildi bara deila þessu með ykkur:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 23:16:21 / Tobba Thunder

Magda í something about Mary.

Jamm og já.

Tíminn bara flýgur frá manni hérna. það eru Prodigy tónleikar á fimtudaginn, er orðin ansi spennt. við erum sem sagt flutt í nýja húsið, fluttningarnar gengu voða vel og nánast allt komið á sinn stað í nýju umhverfi. en það á greinilega ekki að gera manni auðvelt fyrir, þegar ég labbaði inn í stofuna var það fyrsta sem ég sá 5 kongulær á veggnum!!! þær hefðu avleg eins getað verið með svona borða sem stendur á velkomin heim! og vinkað! ég sagði líka við söruh, vinir okkar hafa greinilega flutt bara með okkur, engin spurning með það. svo ég var hérna eins og mad woman fyrsta kvöldið mitt með ryksuguna á fullu að sjúga upp kongulær. ef þið munið eftir brunu kellingunni í something about mary þegar hún var á örvandi með ryksuguna uppí sófa, þá ætti það að gefa ágætis hugmynd um hvernig ég var hérna! en þetta verður bara stutt að sinni...

hurðu já!!! ég held ég hafi sjaldan verið jafn nálægt því að drepa hundkvikindið eins og í dag, HANN ÁT NÝJU CONVERSE SKÓNA MÍNA!!!!!!! get sko sagt ykkur það að hann má þakka fyrir að Richard var heima annars hefði ég drepið hann. one lucky dog, i tell u!

                                                               one pissed off lady...


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 23:25:24 / Tobba Thunder

sælt veri fólkið!

já góða kvöldið!

ég var einhvern veginn að fatta það (alveg án aðstoðar) að það eru ekki nema 23 dagar til jóla!!! dear god tíminn líður hratt. og það sem meira er þá eru ekki nema 12 dagar í fyrsta sveinkann!!! hverning er það, koma þeir við í englandi til að gefa í skóinn? gæti kannski verið smá séns að þeir laumi einhverju til manns svo maður fái nú svona smá íslenskan fíling fyrir því að þetta sé að bresta á??'  já þegar stórt er spurt þá er fátt um svör!

allavega þá hafa síðustu dagar svo sem ekki verið viðburða ríkir, var smá fúl í gær, átti að hitta liz á mardi´s en matt var með einhver leiðindi og neitaði að fara af pöbbnum sem hún átti að sækja hann á. allavega þá um leið og ég er að labba inn, þá labbar Ben inn og þessi elska hafði ofan fyrir mér allt kvöldið, blæddi meira að segja drykkjum og alles. ekki dýrt kvöld það. en allavega þá kom liz aldrei og til að gera langa og óáhugaverða sögu stutta þá var ákveðið að hittast í kvöld í staðinn. sem við gerðum, fórum á the globe, fengum okkur smá hvítt og fórum svo á indverskan stað neðar í götunni, maturinn var rosa góður og við átum bókstaflega á okkur gat!

en helgin lofar ekki góðu, í þessum töluðu (eða skrifuðu) orðum er verið að klára að pakka, þau það er að segja, ekki ég. búin að pakka mínu drasli, tók meira að segja sundur rúmið mitt sjálf. sko stelpuna! þetta getur hún!!!! sef á gólfinu í dýnunni minni á gólfinu í nótt, sem getur varla verið verra en þetta svo kallaða rúm mitt svo það er allt í góðu með það. en í fyrramálið á slaginu átta verður allt crazy hérna, krakkarnir verða hjá einhverjum af öfumnum og ömmunum. fluttningarkallarnir mæta klukkan 10 og þar með erum við flutt! það versta er að ég hef ekki hugmynd um hvert!!!! how lame is that??? en ég þarf víst ekki að búa í nýja húsinu á óþekktum stað nema einhverjar vikur svo það ætti að vera í lagi. en ég held að það sé hér með staðfest að maður á ekki að blogga þegar maður er´orðinn hífaður, anyways later folks... peace out:) 


» 15 hafa sagt sína skoðun

26.11.2005 13:35:07 / Tobba Thunder

Nr. 2000?

jæja það er að koma að því aftur, en í þetta sinn er það...

Hver verður Nr. 2000 ????

var það ekki keppni á milli Halldórs, Bertu og Jójó?

so everyone the race is on! 


» 34 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 08:47:46 / Tobba Thunder

Frakkland it is!

Litli bróðir minn er að flytja til Frakklands von bráðar, yes everyone he got the gig!!! Halldór er að fara að vera aðstoðar maður Friðgeirs á heimsmeistara mótinu í janúar 2007. Flytur einhvern tímann næsta sumar og ég er svo stolt af honum!! Til hamingju Halldór minn. :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 10:08:58 / Tobba Thunder

is it just me??

Ég lenti í ansi skemmtilegum samræðum á mardy´s i gærkvöldi. og við vorum ekki alveg sammála svo ég spyr ykkur...

Ísland tilheyrir skandinavíu ekki rétt?

það var við hann Ben sem ég átti í þessum samræðum við en reyndar er það þannig með hann að allt er "the world according to Ben" og hann hefur aldrei rangt fyrir sér!!! en það er bara einfaldlega vegna þess að þetta er the world according to him! en ég er alveg með það á hreinu að ég  hafi rétt fyrir mér, ástæðan fyrir því að ég fór eitthvað að efast um svar mitt var það að voru fleiri þarna sem voru alveg vissir að íslandi væri EKKI í skandinavíu! og því spyr ég ykkur. Am I going crazy eða hvað er í gangi???


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 14:53:51 / Tobba Thunder

breyttir opnunnar tímar

hvað haldiði að ég hafi heyrt í fréttunum þegar ég var að keyra í krakkana í skólann í morgun?? ó jú það er búið að breyta reglunum um opnunnartíma pöbba og skemmtistaða í englandi frá og með deginum i dag! sem þýðir að núna er það bara eins og á íslandi, hver með opið eins og þeim sýnist. langaði bara að deila þessu með ykkur:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan